Þennan kjól heklaði ég fyrir þó nokkru. Hann er á ca. 6 mán. Ég notaði enga uppskrift. Bara eftir hendinni.
þriðjudagur, 28. janúar 2014
Hekluð barnahúfa, crocheted children cap
Átti afgangs garn frá Europrise og heklaði þessa fallegu húfu á eitt barnabarnið mitt. Engin uppskrift. Kom svona fallega út.Mynstrið kemur svo vel út. Ótrúlegt hvað hægt er að gera úr svona afgangs garni.
laugardagur, 18. janúar 2014
Prjónaður skokkur.
Þennan skokk var ég að klára að prjóna á mig. Úr tvöföldum plötulopa. Ég bara elska íslensku ullina. Smellpassar á mig eins og myndirnar sýna.sunnudagur, 12. janúar 2014
Krókudílahekl sjal. Crocodile crochet shawl.
![]() |
| Heklað krókudílasjal |
miðvikudagur, 1. janúar 2014
Heklaðir herravettlingar, Crocheted mittens
Ég nældi mér í uppskrift af barnavettlingum hekluðum úr bókinni María Heklubók, fannst þetta svo sniðugt og auðvelt að ég ákvað að hekla dömuvettlinga á mig sem ég og gerði. Ég stækkaði uppskriftina. Nú svo ákvað ég að hekla vettlinga á strákinn minn og hér er afraksturinn.
Ég hafði stroffið mun lengra og það er alveg eins og stroffið sé prjónað sl. og br. Ég hafði líka lengra að þumli. Vafðist reyndar fyrir mér hvernig ég ætti að gera hann en svo small þetta allt saman. Dásamlega hlýir úr tvöföldum plötulopa.
fimmtudagur, 7. nóvember 2013
Svefnvandamál

Maðurinn minn er búin að vera að taka inn Vemma heilsusafann núna í 2 mánuði. Hann hefur átt við svefnvanda frá því hann man eftir sér. Hann talaði um það við mig núna síðasta í morgun (7.nóv) að hann sefur eins og barn hverja nóttina eftir aðra og eru það orðnar fleirri næturnar sem hann sefur alla nóttina heldur en ekki, nær djúpum og góðum svefni. Hann byrjaði að finna fyrir þessum frábæru breytingum eftir að hann fór að taka inn þessi æðislegu vítamín, plús það að hann finnur mikin mun á liðagigtinni sem hefur verið að hrjá hann undanfarin ár. Ég segi bara: Vemma er málið. http://irisedda.vemma.com/
laugardagur, 10. ágúst 2013
Heilsufjárfesting, bara frábært.
þegar ég varð fimmtug fór ég að hugsa að ég þyrfti að gera eitthvað varðandi heilsu mína. Ég hef alltaf verið hraust en einhvern vegin fannst mér ég standa á tímamótum í mínu lífi. Ég kynntist heilsulínu sem ég kolfell fyrir en það eru vítamín í fljótandi formi og heita Vemma. Ég er búin að vera taka þau inn í 2 mánuði og þar sem nýtingin er 98% þá fann ég strax mun, reyndar á öðrum degi. Núna er það þannig að ég á betur með að vakna á morgnana og ég hef orku allan daginn. Ég mæli svo sannarlega með þessari vöru.
Grænt te koffínlaust, aloe vera, mangosteen ávöxtur er undirstaðan í öllum vörum frá Vemma.
http://irisedda.vemma.com/
Grænt te koffínlaust, aloe vera, mangosteen ávöxtur er undirstaðan í öllum vörum frá Vemma.
http://irisedda.vemma.com/
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)










