Fyrirsögnin "ÞURFUM VIÐ VÍTAMÍN?
http://aslaug.jakobday.com/blog/?p=808
þriðjudagur, 15. apríl 2014
þriðjudagur, 8. apríl 2014
Minning um gamlan vin!
Ég kvaddi vin minn 6.janúar á þessu ári. Hann hét Capri. Mikið afskaplega var erfitt að sleppa hendinni af honum. Hann veitti mér svo mikin styrk í gegnum árin, samt þurfti ég að eyða slatta af pengingum til að fá hann til að vera memm. Við áttum líka okkar slæmu stundir í gegnum árin, ég þoldi hann ekki en samt gat ég ekki án hans verið að mér fannst. Hann reyndist mér sérstaklega vel á morgnana að mig svimaði og um mig fór sæluhrollur eftir að ég hafði farið út með honum.
Fólk talaði stundum um það að það væri lykt af mér eftir að við höfðum verið saman, ég fann það ekki sjálf og fannst mér alltaf óþægilegt að fólk skyldi tala svona.
Núna þremur mánuðum seinna þá er ég að átta mig á því að Caprí var engin vinur í raun, hvaða vinur er það sem maður þarf að borga fyrir að vera með manni? Hvaða vinur er það sem angar svo illa að það smitar alla sem koma nálægt honum?
Bless Caprí. Ég sakna þín pínu en ég veit að ég á eftir að líta til baka seinna og þá mun ég ekki skilja mig hvað ég hef verið að hugsa undanfarna áratugina.

þriðjudagur, 28. janúar 2014
Heklaður ungbarna kjóll.
Þennan kjól heklaði ég fyrir þó nokkru. Hann er á ca. 6 mán. Ég notaði enga uppskrift. Bara eftir hendinni.
Hekluð barnahúfa, crocheted children cap
Átti afgangs garn frá Europrise og heklaði þessa fallegu húfu á eitt barnabarnið mitt. Engin uppskrift. Kom svona fallega út.Mynstrið kemur svo vel út. Ótrúlegt hvað hægt er að gera úr svona afgangs garni.
laugardagur, 18. janúar 2014
Prjónaður skokkur.
Þennan skokk var ég að klára að prjóna á mig. Úr tvöföldum plötulopa. Ég bara elska íslensku ullina. Smellpassar á mig eins og myndirnar sýna.sunnudagur, 12. janúar 2014
Krókudílahekl sjal. Crocodile crochet shawl.
![]() |
| Heklað krókudílasjal |
miðvikudagur, 1. janúar 2014
Heklaðir herravettlingar, Crocheted mittens
Ég nældi mér í uppskrift af barnavettlingum hekluðum úr bókinni María Heklubók, fannst þetta svo sniðugt og auðvelt að ég ákvað að hekla dömuvettlinga á mig sem ég og gerði. Ég stækkaði uppskriftina. Nú svo ákvað ég að hekla vettlinga á strákinn minn og hér er afraksturinn.
Ég hafði stroffið mun lengra og það er alveg eins og stroffið sé prjónað sl. og br. Ég hafði líka lengra að þumli. Vafðist reyndar fyrir mér hvernig ég ætti að gera hann en svo small þetta allt saman. Dásamlega hlýir úr tvöföldum plötulopa.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)